Foreldrar varaðir við nýju fíkniefni - Gabb sem gengur á netinu

Strawberry Quick sem fólk er talið í trú um að …
Strawberry Quick sem fólk er talið í trú um að ógni börnum.

Tölvupóstur frá bandarískum rannsóknarlögreglumanni þar sem foreldrar eru varaðir við amfetamíndufti sem bragðast eins og sætindi gengur nú manna á milli hér á Íslandi en þetta mun vera gabb.

Fregnin af nýrri tegund af fíkniefni sem virðist vera framleitt með börn í huga skaut upp kollinum á Bretlandseyjum fyrr á þessu ári eftir að lögreglan sendi út viðvörunarbréf til skólayfirvalda.

Karl Steinar Valsson yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar segir að því miður sé um gabb að ræða og að líkt og á Bretlandi hafi einvher sent lögrelumönnum viðvörunina og þeir síðan sent hana á skóla og valdið foreldrum óþarfa áhyggjum.

Í grein BBC um málið segir að nýr starfsmaður hjá bresku lögreglunni hafi fallið fyrir gabbinu og að tilkynning sem hann sendi út þar sem varað var við sælgætisfíkniefninu Strawberry Quick væri röng og óþarft væri að hafa áhyggjur.

Gabbið á líkt og hið skáldaða fíkniefni uppruna sinn í Bandaríkjunum.

Sjá grein BBC

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert