Ágætis búbót

mbl.is/Jim Smart

Japönsk túnfiskveiðiskip hafa verið í Reykjavíkurhöfn undanfarna daga til að leita skjóls fyrir veðri og vindum og notað tækifærið til að taka olíu og vistir. Um 40 skip hafa verið á túnfiskveiðum suður af landhelginni að undanförnu.

„Veðrið hefur verið slæmt og þeir notuðu tækifærið og sóttu sér olíu og mat,“ segir Sigvaldi Hrafn Jósafatsson hjá Gáru ehf. skipamiðlun, sem er með umboð fyrir nokkur skipanna.

Sigvaldi segir mikla búbót fyrir Íslendinga að fá viðskipti við skipin, því hver heimsókn skili nokkrum milljónum króna í gjaldeyri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert