Schaffer hundur slapp eftir 10 metra fall

Rétt í þessu tókst að bjarga Schaffer hundi úr djúpri gjá í Heiðmörk og slapp hann án teljandi meiðsla þrátt fyrir geysihátt fall, eða allt að 10 metra.

Eigandi hundsins fékk aðstoð björgunarsveitamanna og lögreglu til að ná í hundinn og sigu tveir björgunarsveitamenn frá Landsbjörgu niður í gjána. Lauk aðgerðinni nú á sjöunda tímanum, hundi og eiganda til mikils léttis að sögn lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert