Óku framhjá slysstað

Bíll valt á Garðskagavegi, Sunnan við golfvöllin í Leirunni, eftir hádegi í dag. Ökumaður var einn í bifreiðinni og slapp með minniháttar meiðsl. Vegfarendur sem stöðvuðu til að aðstoða ökumanninn, veittu því athygli að minnsta kosti þremur bifreiðum var ekið fram hjá vettvangi án þess að veita ökumanninum aðstoð. Þá var ökumaðurinn hálfur út úr bifreiðinni, sem var á hvolfi, fastur í öryggisbelti. Ökumaðurinn var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með sjúkrabifreið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert