Árvakur verði almenningshlutafélag á næstu árum

Stjórn Árvakurs stækka

Stjórn Árvakurs Golli

„Það liggur ekkert annað fyrir en að af kaupum Árvakurs á Fréttablaðinu verði. Við höfum engar vísbendingar um að 365 vilji taka upp þessa samninga,“ segir Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs.

Hann vísar til umræðna í kjölfar gernings helgarinnar, þegar Rauðsól, félag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, keypti fjölmiðlahluta 365 út úr 365 hf. fyrir 1,5 milljarða króna. Auk þess tekur Rauðsól yfir 4,4 milljarða króna af skuldum 365 hf.

10. október síðastliðinn var tilkynnt að samkomulag hefði tekist um sameiningu Árvakurs, Fréttablaðsins og Pósthússins en samkvæmt samkomulaginu kemur 365 hf. inn í hluthafahóp Árvakurs með 36,5% hlut. Þór Sigfússon segir mikilvægt að þetta gangi eftir.

„Þetta er hluti af vinnu sem hefur farið hér fram með það að markmiði að treysta rekstrargrundvöll Morgunblaðsins og mbl.is og sú vinna gengur vel. Það skiptir miklu í þessari vinnu að þessi samruni blaðanna í einu útgáfufyrirtæki gangi eftir. Þannig næst hámarkshagræðing,“ Segir Þór.

Hann segir framtíðarsýnina skýra um starfsemi Árvakurs. Reksturinn þurfi að skila góðri afkomu, þannig verði sjálfstæði fjölmiðlanna best tryggt.

„Við stefnum að því að dreifa eignaraðild og við vinnum í samræmi við skýrar starfsreglur um stjórnarhætti og kraftmikla og sjálfstæða ritstjórn. Teymi stjórnenda og ritstjórnar er á réttri leið. Það hefur verið tekið til í rekstrinum undanfarin ár og Morgunblaðið og mbl.is eru sannarlega á réttri leið. Við erum með betri uppbyggingu rekstrarins og betri vöru. Þetta kemur vel fram í útgáfu síðustu vikna og auðvitað vísbendingum um verulega meiri lestur en áður á Morgunblaðinu og metlestur á mbl.is. En vitaskuld erum við eins og önnur fyrirtæki í landinu að fást við gífurlega erfiðar aðstæður og við því erum við að bregðast,“ segir Þór.

Hann leggur áherslu á það markmið að Árvakur verði með dreifða eignaraðild og að enginn einn verði yfirgnæfandi.

„Allir stærstu  hluthafar í Árvakri hafa áhuga fyrir því að svo verði. Árvakur á að verða í mínum huga almenningshlutafélag þegar horft er til næstu ára. Morgunblaðið gegnir mjög mikilvægu hlutverki í þessu samfélagi og því er best sinnt með því að traust ríki gagnvart blaðinu og að ólík sjónarmið fái rými. Við munum því breikka hluthafahópinn. Fjölbreytt eignarhald er mikilvægt í þessum rekstri til þess að auka traust. Ég vonast til þess að þegar við leggjum fram áætlun í samstarfi við viðskiptabanka okkar, Glitni, um traustan rekstur þá köllum við eftir breiðum hópi nýrra hluthafa, smárra hluthafa, lífeyrissjóða og annarra sem hafa áhuga fyrir því að hér séu öflugir, óháðir og góðir miðlar,“ segir Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs.

"Við erum með einstakt tækifæri til þess að byggja öflugt fyrirtæki í dagblaðarekstri og vefmiðlun. Við viljum vera í fararbroddi með nýjungar í okkar stjórnarháttum, sem geta vonandi orðið fyrirmynd annarra. Við leggjum áherslu á að Árvakur verði með skýrar starfsreglur um stjórnarhætti fyrirtækisins sem skerpi ábyrgð og efli hlutverk stjórnar. Ég hef mikla trú á því að bættir stjórnarhættir í fyrirtækjum skapi meiri festu, auki fagmennsku og arð þegar til lengdar lætur,“ segir Þór.

Hann bætir við að stjórn félagsins eigi að sínu viti að vera samsett af einstaklingum með ólíka þekkingu og bakgrunn. Stjórnin gæti fyrst og fremst hagsmuna hluthafa en það sé líka mikilvægt í fjölmiðlafyrirtæki að í stjórninni sé ákveðin breidd og hún endurspegli fjölbreytt sjónarmið.

Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs

Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HUMARHLAÐBORÐ - Hafið Bláa - Velkomin !
Humarhlaðborð öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00 Borðapantanir í síma 483 1000. M...
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....