Lífeyrissjóðir frysti lán í sex til tólf mánuði

mbl.is/Kristinn

Landssamtök lífeyrissjóða beina því til lífeyrissjóðanna að bjóða sjóðfélögum í greiðsluerfiðleikum að frysta lífeyrissjóðslán sín í sex til tólf mánuði, til að byrja með, með því að breyta lánaskilmálum tímabundið. Þá mælast Landssamtökin til þess að lífeyrissjóðir taki upp nánara samstarf við Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til að auðvelda sjóðfélögum í vanda að fá heildstæða mynd af stöðu sinni og hvaða leiðir séu til ráða.

Ennfremur er lagt til að lífeyrissjóðir efli upplýsingamiðlun til þeirra sem eru í vanda staddir eða eru að kanna sjálfir hvernig þeir eigi að komast hjá því að lenda í fjárhagsvandræðum.

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða skipaði um miðjan október starfshóp til að fjalla um greiðsluvanda sjóðfélaga og tillögur til úrbóta. Starfshópurinn vann hratt og skilaði af sér tillögum fyrir helgi, ásamt greinargerð. Stjórn Landssamtakanna hefur fjallað um tillögurnar og samþykkt að gera þær að sínum. Tillögurnar hafa verið sendar til lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða til umfjöllunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert