Ný bankaráð fyrir vikulok

mbl.is/Kristinn

Unnið er að því að gengið verði frá skipun nýrra bankaráða ríkisbankanna þriggja fyrir lok þessarar viku. Þetta kom fram í svari Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar á Alþingi í dag. Árni sagði að haft yrði samráð við bæði við stjórnarflokka og stjórnarandstöðuflokka á Alþingi við skipun í bankaráðin þannig að hvorir tveggja komi að bankaráðum ríkisbankanna.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði fjármálaráðherra hvaða leiðir yrðu farnar til að finna hæfustu einstaklingana. Ennfremur hvort nýju bankaráðin hefðu fjrálsar hendur varðandi ráðningu bankastjóra bankanna eða hvort núverandi stjórnendur væru ráðnir til lengri tíma.

„Bankaráðin sem setið hafa, hafa ráðið bankastjóra og þeir síðan ráðið aðra starfsmenn. Ég man ekki í augnablikinu hvort ráðningarsamningar við bankastjórana eru tímabundnir. Ef svo er þá eru þeir til endurskoðunar að þeim tíma liðnum og ef menn vilja endurskoða þá fyrr er sjálfsagt hægt að gera það miðað við almennar reglur sem gilda um tímabundna samninga sem sagt er upp áður en umsömdu tímabili er lokið, en það væri þá í valdi hinna nýju bankaráða að gera það,“ sagði,“ fjármálaráðherra.

Árni Mathiesen sagði að fagleg sjónarmið yrðu höfð til viðmiðunar við val á bankaráðsmönnum, að þar kæmi að fólk sem hefur reynslu af bankastörfum eða störfum úr viðskiptalífinu sem það geti miðlað af í störfum sínum.

„Það þrengir auðvitað nokkuð kost þeirra sem velja í bankaráðin að þeir sem hafa þekkingu á bankamálum hafa almennt starfað eða komið að einhverju leyti nálægt gömlu bönkunum og því þarf að vanda valið þegar valdir eru fulltrúar í bankaráðin,“ sagði fjármálaráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert