Starfsmennt og Samskip hlutu Starfsmenntaverðlaun

Frá vinstri: Bára Mjöll Ágústsdóttir, forstöðumaður mannauðsdeildar Samskipa, Auður Þórhallsdóttir, …
Frá vinstri: Bára Mjöll Ágústsdóttir, forstöðumaður mannauðsdeildar Samskipa, Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Kristín Völundardóttir, sýslumaður, Árni Stefán Jónsson,stjórnarformaður Fræðslusetursins Starfsmenntar og Hulda Anna Arnljótsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar.

Samskip hf. hlaut í dag Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2008 í flokki fyrirtækja. Í flokki skóla og fræðsluaðila, hlaut Fræðslusetrið Starfsmennt í samstarfi við Sýslumannafélag Íslands verðlaun vegna verkefnisins Járnsíða.

Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs eru veitt þeim aðilum sem þykja vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar á Íslandi. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í dag.

Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa tekur við viðurkenningunni úr hendi forseta …
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa tekur við viðurkenningunni úr hendi forseta Íslands.
Bára Mjöll Ágústsdóttir, forstöðumaður mannauðsdeildar Samskipa, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, …
Bára Mjöll Ágústsdóttir, forstöðumaður mannauðsdeildar Samskipa, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert