Aukinn ýsuafli fluttur út óunninn

Alls voru flutt út 51.658 tonn af óunnum botnfiski á erlenda ísfisksmarkaði á tímabilinu janúar - október 2008 sem er 16,7% meira magn en flutt var út á sama tíma 2007, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu.

Meiri útflutningur ýsu vegur þar þyngst og virðist drjúgum hluta af aukningu ýsuaflans milli ára hafa verið ráðstafað á þennan hátt. Alls voru flutt út 21.540 tonn af ýsu miðað við 15.923 tonn fyrstu 10 mánuði ársins 2007. Útflutningur á þorski nam 5.459 tonnum, sem er svipað og í fyrra.

Verðmæti útflutningsins jókst um tæplega helming. Lækkun á gengi íslensku krónunnar vegur þyngst í 28% verðhækkun útflutts ískfisks milli ára. „Þegar kannaður er ísfisksútflutningur í nýliðnum október og hann borinn saman við útflutninginn í sama mánuði í fyrra þá vekur athygli að magnið óx ekki verulega. Að vísu jókst útflutt magn úr 4.339 tonnum í 4.700 tonn sem er í takt við aukningu heildarútflutningsins milli ára. Sú aukning staðfestir hinsvegar ekki orðróm um stóraukinn ísfisksútflutning í október vegna liðugra streymis gjaldeyris milli landa í slíkum viðskiptum en í öðrum viðskiptum með íslenska útflutningsframleiðslu. En eins og kunnugt er hafa verið miklir erfiðleikar í greiðslumiðlun milli Íslands og annarra landa í kjölfar hruns íslensku bankanna,“ segir á vef Fiskistofu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert