Áfram í gæsluvarðhaldi
Tveir karlar voru í héraðsdómi í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru grunaðir um aðild að ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Mennirnir sem um ræðir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson, voru báðir á
reynslulausn eftir að hafa setið í fangelsi fyrir alvarlega glæpi þegar þeir voru handteknir í tengslum við amfetamínverksmiðjuna í Hafnarfirði.
Jónas Ingi var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir aðild sína að hinu svokallaða líkfundarmáli en Tindur Jónsson var vorið 2006 dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps með sveðju og fjórar aðrar líkamsárásir. Fyrir dómsuppkvaðningu hafði Tindur setið í gæsluvarðhaldi í sex mánuði.
Í iðnaðarhúsnæðinu, þar sem verksmiðjan var til húsa, var lagt hald á háþróaðan tækjabúnað sem nota má til fíkniefnaframleiðslu. Þar fannst einnig efni á framleiðslustigi, 20 kg af hassi og efni sem talið er vera fullunnið amfetamín eða metamfetamín.
Ljóst þykir að framleiðslugeta verksmiðjunnar hafi verið afar mikil. Skömmu áður en mennirnir voru handteknir höfðu þeir flutt til landsins eitt tonn af mjólkursykri sem er notaður sem íblöndunarefni. Lögreglan telur að framleiðslan hafi ekki verið lengi í gangi áður en hún lét til skarar skríða í síðasta mánuði.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. október 2008, Innlent Gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls framlengt
- Miðvikudagur, 26. nóvember 2008, Innlent Komnir í afplánun
- Þriðjudagur, 2. júní 2009, Innlent Áfram í gæsluvarðhaldi
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Innlent Höfuðpaurar á reynslulausn
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Áfram í gæsluvarðhaldi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































