Skipuð verði Evrópunefnd
Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tilkynna niðurstöðu miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Golli
Geir Haarde forsætisráðherra segir að ákveðið hafi verið á miðstjórnarfundi flokksins í dag að skipa sérstaka Evrópunefnd. Þá verður landsfundi Sjálfstæðisflokksins flýtt til 29. janúar til 1. febrúar og á Evrópunefndin að ljúka störfum fyrir þann tíma.
Formaður og varaformaður nefndarinnar eru Kristján Þór Júlíusson þingmaður og Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Tillögur Geirs voru samþykktar einróma á fundi miðstjórnar flokksins, en miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins komu saman til fundar í Valhöll í hádeginu.
Geir segir að með þessu sé verið að skoða upp á nýtt það hagsmunamat sem liggi til grundvallar stefnu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum. „Við höfum ævinlega lagt áherslu á það sé háð hagsmunamati hvernig samstarf okkar við Evrópulönd er háttað. Við göngum ekki til þess að taka afstöðu af því tagi á grundvelli trúarvissu eða trúarbragða, heldur á grundvelli þess hvernig við teljum að hagsmunum Íslands sé betur borgið.“
Nefndin mun skoða stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ríkjum Evrópu og valkostum Íslands í alþjóðasamstarfinu. „Þannig að við erum ekki að binda þetta eingöngu við Evrópusambandið,“ segir Geir.
Geir segir að það sé ekki aðeins réttlætanlegt heldur einnig nauðsynlegt að flýta landsfundinum, fundurinn átti að fara fram í október á næsta ári. Hann tekur fram að ekki sé komin fram ný stefna, það sé hlutverk landsfundarins að staðfesta stefnuna eða skipta um hana.
Geir segist ekki sjálfur hafa skipt um skoðun í Evrópumálunum en að hann gengi að þessu starfi með opnum huga. Vísaði hann m.a. til þess, að Evrópusambandið hefði nú sýnt Íslandi vígtennurnar í málum Icesave reikninga Landsbankans og til þess yrði væntanlega litið í þeirri vinnu, sem framundan er. „Viljum við vera innan bandalags eða sambands sem beitir hörðu þegar um er að ræða mikla hagsmuni af okkar hálfu? Þetta er allt saman sjónarmið sem fólk verður að taka með sér í þetta mat. En það þýðir ekki það að matið eigi ekki að fara fram,“ sagði Geir.
„Við erum ekki að svara Samfylkingunni með þessari vinnu sem að við erum að setja af stað. Allar ályktanir í þá átt eru náttúrulega bara út í hött. Við erum að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu á okkar eigin forsendum. Og við gerum það hratt vegna þess að við erum flokkur sem er fljótur að bregðast við.“
|
|
Tilkynning Sjálfstæðisflokksins. |
Bloggað um fréttina
-
Birgir Gunnarsson Að breyta um skoðun -
Jón Halldór Eiríksson Þolrifin teygð og slitin. -
Jóhann Elíasson Engin breyting!!!!!! -
Ómar Ragnarsson Nú hefði verið gott að... -
Guðjón Baldursson Lokaniðurtalningin -
Heimir Eyvindarson Ummæli dagsins! -
Sigrún Jónsdóttir Landsfundur = kosningar í vor! -
Jónas Tryggvi Jóhannsson Frestunarárátta Geirs -
Haraldur Bjarnason Mikill er máttur bakarans -
Stefán Friðrik Stefánsson Landsfundi flýtt - opnað á Evrópuumræðuna -
Hallur Magnússon #9541 Ísland komið í Evrópusambandið og með evru í árslok 2010? -
Herdís Sigurjónsdóttir Ég fer á landsfund -
Jón Ingi Cæsarsson Loksins eitthvað af viti. -
DÓNAS Geir góði......
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 20. desember 2008, Innlent Fleiri en ein tillaga ef ekki næst samstaða
- Föstudagur, 14. nóvember 2008, Innlent Þrír leiða Evrópustarfið
- Mánudagur, 22. desember 2008, Innlent Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar
- Laugardagur, 15. nóvember 2008, Innlent Óttumst ekki kosningar
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Landsfundur færður nær kosningum?
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































