„Stórkostlegur fundur - mikil samheldni“

Mikil stemmning var á fundinum á Nasa í kvöld og troðfullt út úr dyrum. stækka

Mikil stemmning var á fundinum á Nasa í kvöld og troðfullt út úr dyrum. Ómar Óskarsson

„Þetta var stórkostlegur fundur og mikil samheldni í fólkinu,“ sagði Gunnar Sigurðsson leikstjóri við Fréttavef Morgunblaðsins, en hann var fundarstjóri og einn boðenda opins borgarafundar á veitingastaðnum Nasa í kvöld. Troðfullt var út úr dyrum og stemmningin góð.

„Ég held að fjölmiðlamenn geti lært mikið af fundinum ef þeir líta í eigin barm," sagði Gunnar, en fulltrúar fjölmiðla sátu í pallborði að loknum ávörpum frummælenda. Umföllun miðlanna í aðdraganda bankahrunsins var í brennidepli.

Þetta var þriðji fundurinn sem Gunnar og fleira fólk boða til í því skyni að ræða um ástandið í þjóðfélaginu. Tveir þeir fyrstu voru í Iðnó en sá í kvöld var lang fjölmennastur. 

„Það var mjög gaman að heyra í fólkinu. Við erum ákveðin í því að næsti fundur, eftir viku, verði í Háskólabíói og þá krefjumst við þess að ríkisstjórn Íslands mæti. Fólkið vill tala við hana milliliðalaust. Þá verða stólar á sviðinu með nöfnum ráðherranna; við skulum sjá hve margir verða tómir. Við krefjumst þess líka að allir alþingismenn Íslands mæti eða sendi fulltrúa sinn,“ sagði Gunnar í kvöld.

„Mér finnst líka sjálfsagt að Ríkisútvarpið sendi beint út frá fundinum og mun krefjast þess. Fyrst RÚV gat verið með beina útsendingu frá blaðamannafundi Sjálfstæðisflokksins ættu þeir að geta það.“

Líklegt er talið að 800 manns hafi verið á Nasa í kvöld og stemmning var góð. Mikið var klappað og góður rómur gerður að ræðum. Margar hnyttnar setningar hrutu af vörum ræðumanna og fengu góðan hljómgrunn.

Fummælendur voru Irma Erlingsdóttir, bókmenntafræðingur, Eggert Briem, stærðfræðingur, Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður og Davíð A. Stefánsson, bókmenntafræðingur.

Einn ræðumanna líkti ástandinu í þjóðfélaginu við rútu sem ekið hefði verið á ofsahraða út í skurð. Síðan þegar sjúkrabíllinn kom var enginn annar en hinn glannafengndi rútubílstjóri undir stýri.

Þegar frummælendur höfðu lokið máli sínu var orðið gefið laust og hver sem vildi fékk tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.

Síðan fóru fram pallborðsumræður þar sem fulltrúar fjölmiðla og Blaðamannafélags Íslands áttu sæti; Ólafur Stephensen ritstjóri Morgunblaðsins, Jón Kaldal ritstjóri Fréttablaðsins, Broddi Broddason fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaður hjá Stöð2 og Bylgjunni, Reynir Traustason ritstjóri DV, Egill Helgason sjónvarpsmaður og Arna Schram frá Blaðamannafélagi Íslands.

Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum, bankastjórum, fréttastjórum og öðru fjölmiðlafólki var boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga milliliðalaust. Nokkrir alþingismenn mættu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Snyrti og nuddbekkir
Glæsilegur snyrti og nuddbekkur fáanlegur í 3 litum. 185*60-81cm. Það sem á mynd...
Sparibaukurinn er til sölu - Peugeot 206 HDI árg.2006
Þessi bíll notar disel olíu, hann eyðir mjög litlu 4-5 lítrum á hundraðið. Hann ...
Lazy boy stóll - microfiber áklæði
Hef til sölu 6 ára gamlan lazy boy stól, raunverulegur lazy boy stóll, keyptur í...
 
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...