Sektaður fyrir eignaspjöll

mbl.is

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi mann til greiðslu 40  þúsund króna í sekt fyrir eignaspjöll. Maðurinn kastaði sér upp á húdd bíls á Selfossi og dældaði annað frambretti bílsins. Maðurinn játaði sök. Bótakröfu bíleigandans var vísað frá þar sem ekki þótti ljóst hvort hann hafði þegar fengið tjónið bætt frá tryggingafélagi bílsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert