Bílvelta við Hvolsvöll

Jepplingur valt rétt austan við Hvolsvöll í morgun. Ekki urðu slys á fólki sem þykir mesta mildi því að bíllinn var mikið skemmdur. Einn ökumaður var í bílnum og var læknir sendur á svæðið til að  skoða hann, en ekki þótti ástæða til að senda ökumanninn á sjúkrahús.

Hálkublettir eru á  veginum og biður lögregla á Hvolsvelli fólk um að haga ökuhraðanum eftir aðstæðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert