Davíð sagður hafa gert aðför að forsetahjónunum
Staðhæft er í bókinni Saga af forseta, að auðveldlega megi túlka bréf, sem Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, sendi Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, sem aðför að forsetahjónunum. Í bréfinu gerði Davíð athugasemdir við framkvæmd hjónavígslu Ólafs Ragnars og Dorrit Moussiaeff árið 2003.
Fram kemur í bókinni, sem Gunnar Friðriksson skráir, að nokkrum vikum eftir hjónavígsluna hafi Guðmundur Sophusson, sýslumaður sem gaf þau Ólaf Ragnar og Dorrit saman, beðið Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðing Ólafs Ragnars, um staðfestingu á því að hjónabandi Dorritar og fyrrum eiginmanns hennar, Neil Zarach, hafi verið lokið er hún giftist Ólafi.
Skömmu síðar hafi Hagstofan, sem á þeim tíma heyrði undir forsætisráðuneytið, tilkynnt Sigurði að ekki væri hægt að skrá Dorrit með lögheimili á Bessastöðum þar sem fullnægjandi gögn um skilnað hennar lægju ekki fyrir og að hún yrði því að sækja um landvistarleyfi á Íslandi.
Þá sendi Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, forsetanum bréf þar sem gerðar voru athugasemdir við hjónavígsluna. Sagði þar að formsatriðum hafi ekki verið fullnægt og að naumast þyrfti að árétta að allir ættu að vera jafnir fyrir lögunum. Málið væri hið vandræðalegasta og óheppilegt hvernig til hjónabandsins hafi verið stofnað.Eftir að hafa lesið bréfið hringdi Ólafur, að sögn Sigurðar, í Davíð, sagði honum að sér þætti bréfið skrítið og útskýrði fyrir honum málavöxtu. Mun Davíð hafi sagst ætla að athuga málið og hafa samband aftur vegna þess en að það hafi hann aldrei gert.
Í bókinni segir að við athugun á tölvuskráningu í Bretlandi hafi komið í ljós að skilnaður Dorrit hafi verið skráður en ekki hafi verið skráð endanleg staðfesting hans sem skal fara fram ári síðar. Skömmu eftir samtal Ólafs og Davíðs hafi skilnaðarvottorð Dorritar hins vegar borist frá Bretlandi.
Bloggað um fréttina
-
Sólveig Þóra Jónsdóttir Þreytandi -
Baldur Gautur Baldursson Davíð sýnir sinn innri mann! ojj ojj ojj -
Kristján H Theódórsson Staðfesting á skítlegu eðli? -
Kolbrún Hilmars Fréttaskúbb ársins eða bókarauglýsing? -
Heimir L Fjeldsted Davíð var Ólafi Ragnari sá vinur sem hann þurfti á ... -
Snorri Óskarsson Mátti Dorrit vera fjölveri á Bessastöðum? -
Flosi Kristjánsson Hver kvabbar á forseta? -
Júlíus Björnsson Davíð ant um orðspor Íslands
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. nóvember 2008, Innlent Dularfullar njósnir í London
- Föstudagur, 23. nóvember 2007, Innlent Forsetinn ætlaði einnig að hafna breyttum fjölmiðlalögum
- Fimmtudagur, 8. maí 2008, Innlent Íslandsheimsókn lokið
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent Dorrit segist lengi hafa varað við fjármálahruni
- Sunnudagur, 8. febrúar 2009, Innlent Björn: Réttmæt ábending Davíðs
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































