Alvarleg líkamsárás fest á filmu
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.isLögreglan á Suðurnesjum hefur nú til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem fest var á filmu í Njarðvík í dag. Myndskeið af líkamsárásinni var birt á vefsíðunni Youtube.com fyrir skömmu og hún er þar kölluð slagur. Í raun eru þar hins vegar þrír unglingsdrengir að veitast að einum, með höggum og spörkum, á meðan aðrir fylgjast með. Þar sést hvernig þeir láta spörkin dynja á baki, kvið og höfði þolandans.
Yfirvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum segir að sér hafi verið brugðið við að horfa á myndbandið, en ónefndur aðili sendi myndskeiðið til lögreglunnar á tölvupósti. Aðspurður segir hann að augljóslega sé um alvarlega líkamsárás að ræða, brot á 218. grein almennra hegningarlaga. Brot á þeirri lagagrein varðar sektum eða fangelsi allt að þremur árum, en ef brotið er sérstaklega hættulegt getur það varðað fangelsi allt að 16 árum.
Drengurinn sem varð fyrir árásinni leitaði sér læknisaðstoðar í dag. Lögregla hefur sett sig í samband við hann. Yfirvarðstjóri tjáði blaðamanni mbl.is að gælunöfn árásarmannanna séu þekkt, málið sé í rannsókn og að gengið verði í það mál á morgun að hafa uppi á árásarmönnunum.
Myndskeiðið var fjarlægt af vefnum en hefur verið sett þangað aftur inn.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Eðvaldsson Ég væri á Litla Hrauni. -
Sveinn Guðgeir Ásgeirsson Hálfvita skapur!!!! -
Jóhann I Axelsson Svona Aumingja -
Gísli Foster Hjartarson Hverslags viðbjóður et þetta. -
Hrund Traustadóttir Gælunöfnin þekkt? -
Stefán Friðrik Stefánsson Hvernig er hægt að kalla grófa árás á einn slag? -
Margrét M hvað er í gangi þarna .., -
Kristján Helgi Benjamínsson Hérna er myndbandið -
Marta B Helgadóttir Sorglegasta fréttin og kossaflens -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Svo eiga foreldrar að vera rólegir. -
Valgeir Árnason Gott að vera glæpamaður á Íslandi! -
Marta Gunnarsdóttir HORFIÐ Á ÞETTA ÓGEÐ STRAX -
Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir Hvað er þar til að rannsaka? -
Kristbjörg Þórisdóttir Unglingar á Íslandi í slæmum vanda -
Þóra Mjöll Jensdóttir Ljótt
Innlent »
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. nóvember 2008, Innlent Árásarmenn í skýrslutöku
- Miðvikudagur, 19. mars 2008, Innlent Líkamsárásarmál þingfest
- Þriðjudagur, 25. nóvember 2008, Innlent Árásarmönnum vikið úr skóla
- Fimmtudagur, 24. janúar 2008, Innlent Dæmdir í 5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Miðvikudagur, 12. mars 2008, Innlent Einn dæmdur og tveir sýknaðir af ákæru fyrir árás á lögreglu
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































