Boðið að kasta krónunni

Krónan á undir högg að sækja.
Krónan á undir högg að sækja. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ungir jafnaðarmenn bjóða Íslendingum að kasta krónunni og taka upp evruna í dag, segir í fréttatilkynningu. Gjörningurinn verður á sama tíma og mótmælafundur fer fram á Austurvelli. Liðsmenn samtakanna verða við Kaffi París frá kl. 14.30 og taka myndir af fólk að taka upp evruna.

 Myndirnar munu síðan birtast á heimasíðu UJ www.politik.is. Um leið getur fólk kastað krónunni. Krónurnar sem kastað verður eiga að renna í styrktarsjóð mótmælafundarins (grænu borðanna).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert