Stólar merktir ráðherrum
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is
„Við höfum boðið öllum ráðamönnum þjóðarinnar; ríkisstjórn, við höfum boðið Davíð Oddssyni sérstaklega, öllum alþingismönnum. Við merkjum stóla með nöfnum ráðherranna og fimmtíu og einn stól fyrir þingmenn,“ segir Gunnar Sigurðsson leikstjóri, en hann er einn skipuleggjenda borgarafundanna sem haldnir hafa verið síðustu vikur á mánudagskvöldum, fyrst í Iðnó, síðast á Nasa og í kvöld í Háskólabíói.
„Já, það er auðvelt að sjá hverjir mæta ekki,“ segir Gunnar, en stólar ráðamanna verða allir á sviðinu í stóra sal bíósins. „Alþingismenn eru ekki að koma til að tala, aðeins til að hlusta.“
Að sögn Gunnars hafa heimturnar á ráðamönnum á fundina verið misjafnar, einnig á formönnum flokkanna sem eiga sæti á Alþingi og boðið var á annan fundinn. Þrettán alþingismenn sóttu fyrsta fundinn; á öðrum fundinum var formönnum flokkanna á Alþingi sérstaklega boðið í pallborð. „Eini formaðurinn sem mætti var Steingrímur Sigfússon, en Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, mætti líka í salinn. Aðrir sendu varaformenn en Illugi Gunnarsson mætti fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Á fundinn á Nasa á mánudaginn var mættu svo fréttastjórar fjölmiðlanna.“
Gunnar segir að um 8-900 manns hafi mætt á síðasta fund, og því hafi verið ákveðið að fá Háskólabíó næst. „Stemningin á fundunum hefur verið mjög góð; það eru þegnar þessa lands, og þeir láta sig málin varða. Við erum ekki bara mótmælendur, við erum viðmælendur.“
Bloggað um fréttina
-
Hólmdís Hjartardóttir Mætir Þórunn ein? -
Guðmundur Andri Skúlason Að búa til og rækta -
Vefritid Kosningar ...eftir smá
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Húsfyllir í Háskólabíói
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Innlent „Stórkostlegur fundur“
- Laugardagur, 4. apríl 2009, Innlent Tannviðgerðirnar vinsælar
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Góð stemning á borgarafundi í kvöld
- Mánudagur, 8. desember 2008, Innlent Hiti í fólki í Háskólabíói
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































