Játuðu þjófnað á bátum

Gúmmíbátur af Bombard- gerð
Gúmmíbátur af Bombard- gerð

Fimmtán manna Zodiac bát með stórum 4 strokka utanborðsmótor var stolið um miðjan september. Báturinn var geymdur í geymsluhúsnæði. Verðmæti hans var talið vera um 2,6 milljónir króna. Í byrjun nóvember var síðan stolið Bombard harðbotna gúmmíbát af afgirtu svæði við Eyjaslóð á Granda. Sá bátur var með stórum fjögurra strokka mótor, stýri og ljósboga. Verðmæti bátsins mun vera um 2 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Síðastliðinn fimmtudag fannst síðan Zodiac báturinn og búið var að setja á hann stýrið, mótorinn og ljósbogann af Bombard bátnum. Í kjölfarið voru tveir menn handteknir og játuðu þeir að hafa stolið báðum bátunum.

„Mennirnir höfðu farið á Zodiac bátnum út á Granda þar sem þeir sóttu Bombard bátinn og drógu hann að hafnarsvæði þar sem þeir höfðu aðstöðu.

Mennirnir vísuðu lögreglu á bílskúr þar sem þeir geymdu mótorinn af Zodiac bátnum ásamt fylgihlutum. Bombard báturinn er enn ófundinn," að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert