Víða er hálka á vegum

Vetrarfærð er víða á landinu.
Vetrarfærð er víða á landinu. mbl.is/RAX

Að sögn Vegagerðarinnar eru víða hálkublettir og éljagangur á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er á Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjall er ófært.

Á Norðvesturlandi eru víða hálkublettir, en allar helstu leiðir eru opnar.

Á Norðausturlandi er víða hálka.

Á Austurlandi er víðast hvar snjóþekja.  Öxi er ófær.

Vegir eru víðast auðir á Suðurlandi en þó eru sumstaðar hálkublettir í uppsveitum.

Svipað er að segja um Vesturland, þar er mjög víða autt þótt hálkublettir séu á nokkrum leiðum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert