Kaupsamningum fækkaði um 49%

Þinglýstum kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 49% milli október og nóvember. Velta í fasteignaviðskiptum minnkaði um 47,3%. Á Akureyri var 11 samningum þinglýst í nóvember.

Í október var þinglýst 312 kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu, velta nam 8,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,6 milljónir króna. Í nóvember var þinglýst 159 samningum, heildarvelta nam 4,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,6 milljónir króna. 

25 samningum var þinglýst á Árborgarsvæðinu í nóvember, 10 samningum þinglýst á Akranesi og 37 í Reykjanesbæ.

Vefur Fasteignamats ríkisins 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert