Sýktri síld landað í Eyjum

Silfur hafsins.
Silfur hafsins. mbl.is/Kristján

Kap VE kom að landi í dag með um 700 tonn af síld og vonuðust forráðamenn Vinnslustöðvarinnar að síldin væri hæf til manneldis.  Svo fór þó ekki, síldin var sýkt eins og sá afli sem borist hefur undanfarna daga og því varð ekkert af frystingu að þessu sinni, að því er fram kemur á vef Eyjafrétta

Þar segir að líklegt sé að aflinn fari því allur í bræðslu.

Sigurjón Gísli Jónsson, framleiðslustjóri Vinnslustöðvarinnar, segir hins vegar í samtali við Eyjafréttir að þrátt fyrir sýkinguna sé síldin vel hæf til manneldis. Sýkingin sé fyrst og fremst útlitsgalli sem valdi því að erfitt sé að selja hana til manneldis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert