Orkan og Skeljungur lækka verð

Orkan hefur lækkað verð á bensínlítranum um 4 kr og verð á lítra af díselolíu um 6 krónur. Eftir lækkunina kostar lítrinn af bensíni hjá Orkunni nú 137,10 kr og dísellítrinn kostar 164,80 kr. 

Skeljungur lækkaði einnig verð sín um sömu krónutölu og eftir lækkun kostar bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu 138,80 kr og dísellítrinn 166,40 kr.

Fyrr í morgun lækkuðu N1 og Atlantsolía eldsneytisverð um sömu krónutölu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert