Diplóma- og meistaranám með áherslu á öldrun

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri. mbl.is

Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri mun á vormisseri 2009 bjóða í fyrsta sinn upp á framhaldsnám þar sem áhersla verður lögð á öldrun og öldrunarfræði.

Í tilkynningu segir að aldraðir séu sá hópur í þjóðfélaginu sem vaxi hvað hraðast og heilsa, virkni og vellíðan þessa aldurshóps sé einn af mikilvægum hornsteinum okkar þjóðfélagsins.

Markmiðið með þessu námsframboði Háskólans á Akureyri er að útskrifa einstaklinga sem eru vel í stakk búnir til að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem bíða fagfólks í öldrunarþjónustu í dag.

Forstöðumaður námsleiðarinnar er Sólveig Ása Árnadóttir, lektor við HA. Nemendur geta valið um 40 ECTS eininga diplómanám eða 120 ECTS eininga meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á öldrun.

Kjarnanámsskeiðið í þessum námslínum er Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi (10 ECTS eininga námsskeið) sem verður kennt á vorönn 2009 og síðan annað hvert ár.

Umsóknarfrestur fyrir þessa námslínu er 15. desember næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert