Frumvarp: miklar takmarkanir á auglýsingar RÚV

Miklar takmarkanir verða settar á möguleika RÚV til að afla auglýsingatekna, ef frumvarp menntamálaráðherra til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið verður að lögum. Þetta kemur fram á fréttavefnum AMX sem og að frumvarpið verði lagt fyrir þingflokka stjórnarflokkanna á morgun.

AMX greinir einnig frá því að uppi séu hugmyndir um að ríkissjóður kaupi fasteign Ríkisútvarpsins við Efstaleiti og að söluandvirðinu verði ráðstafað til þess að létta á lífeyrisskuldbindingum fyrirtækisins.

AMX segir að skv. frumvarpinu sé gert ráð fyrir að svokallaður nefskattur, sem kemur í stað afnotagjalda, renni beint til ríkissjóðs en skv. sérstökum þjónustusamningi milli RÚV og ríkisins verði tekjur tryggðar. AMX segir nefskattinn verða, skv. frumvarpinu, 17.900 krónur og einstaklingar sem nú greiða í framkvæmdasjóð aldraðra þurfi að greiða nefskattinn sem og þeir lögaðilar sem eru skattskyldir og bera sjálfstæða skattaðild.

Verulegar skorður verða settar á auglýsingar og kostun dagskrárefnis í Ríkisútvarpinu nái frumvarp menntamálaráðherra fram að ganga.

AMX telur þetta til:

  • Skorður verða settar við auglýsingum sem hlutfall af daglegum útsendingartíma. Á kjörtíma sem er frá kl. 19-22, skal hlutfallið ekki vera hærra en 5%. Á öðrum útsendingartímum getur hlutfall auglýsinga orðið 10%.
  • Sett verður hámark fyrir órofinn samfelldan auglýsingatíma. Auglýsingatími má ekki fara yfir 200 sekúndur og fjöldi auglýsingatíma má ekki fara yfir tvo á klukkustund.
  • RÚV verður óheimild að rjúfa dagskrárliði, sem eru styttri en 45 mínútur, með auglýsingum.
  • Bann verður lagt við birtingu auglýsinga á útsendingartíma barnaefnis, sem og tíu mínútum fyrir og eftir útsendingu barnaefnis.
  • Óheimilt verður að afla tekna með kostun, nema um sé að ræða stórviðburði samkvæmt skilgreiningu í þjónustusamningi. Sérstakar reglur verða settar um kostun í þjónustusamningi milli ríkis og RÚV.
  • RÚV verður óheimilt að afla tekna með vöruinnsetningu, þ.e. að semja við framleiðendur vöru og þjónustu um óbeina kynningu á vörum þeirra eða þjónustu með innsetningu þeirra í sviðsmyndir og hvers konar umfjöllun sem kann að hafa markaðslegt gildi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert