Grunur um salmonellu í kjúklingi

Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli. Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 011-08-44-5-33. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð. Í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins og í samráði við heilbrigðisyfirvöld hefur verið unnið að innköllun vörunar í dag.

Í tilkynningu frá Matfugli kemur fram að fólk sem hefur keypt ferska kjúklinga er beðið um að gæta að rekjanleikanúmerinu, sem er að finna á miða neðan á umbúðunum, og skila kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf, Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

„Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklinga, steiki í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra vöru.

Kjúklingur með öðru rekjanleikanúmeri en þessu er fullkomlega í lagi," að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert