Erfitt að meta stöðu Stafa

Fjórar af fimm séreignaleiðum Stafa lífeyrissjóðs báru neikvæða ávöxtun frá áramótum og út október. Leið 4, hlutabréfa og samsettra fjárfestingakosta, fór verst út og töpuðu sjóðsfélagar 32,5% séreignarsparnaðar síns. Ávöxtun annarra leiða var neikvæð um 3,8-16,8%. Leið 1, sem er verðtryggður innlánsreikningur, hefur skilað 18,4% ávöxtun í ár.

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs, segir erfitt að meta stöðu sjóðsins eftir bankahrunið en það ætlar hann að gera á fundi á Grand Hóteli á fimmtudagskvöld. Ólafur bíður með tölurnar og mat á almennum lífeyrisgreiðslum upp úr áramótum þar til á fundinum. „Við viljum skýra út forsendurnar fyrir útreikningunum fyrir sjóðsfélögunum.“

Ólafur segir töluvert um varúðarafskriftir. „Við eigum skuldabréf í fjölmörgum stórfyrirtækjum í landinu og sitt sýnist hverjum um greiðslugetu þeirra. Við bendum á að sjóðurinn hefur afskrifað töluvert mikið í varúðarskyni en það er til endurskoðunar mánaðarlega.“ Því verði staðan sem kynnt verði á fundinum hugsanlega verri en sú endanlega. „Við búumst við því að um áramót verði staðan öðruvísi.“ Þeir meti hverja frétt og áhrif hennar á stöðu sjóðins. „Það er mikil óvissa í mati lífeyrissjóðsins.“

Stafir eru 5. stærsti lífeyrissjóðurinn á Íslandi. Um 50 þúsund eiga réttindi í Stöfum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert