Vaxandi tækjaeign heimila

Þurrkurum hefur fjölgað á heimilum síðustu misserin.
Þurrkurum hefur fjölgað á heimilum síðustu misserin.

Tækjaeign heimila fór vaxandi á árunum 2005 til 2007 samkvæmt rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna. Algengustu heimilistækin voru ísskápur, þvottavél og örbylgjuofn. Mest var aukningin í eign á þurrkurum en  árið 2005 áttu tæp 43% heimila slík tæki og  tæp 54% árið 2007. Eign á myndbandsupptökuvélum og bátum virðist einnig vera algengari en áður.

Þá lækkaði hlutfall heimila, sem ekki á bíl. Árið 2005 voru um 11% heimila bíllaus, um 13% árið 2006 en tæp 9% árið 2007. Af þeim heimilum sem áttu bíl virtist þeim fjölga sem eiga fleiri en einn. Tæp 28% heimila áttu tvo bíla eða fleiri árið 2005 en  þau voru um 30% árið 2006 og tæp 32% árið 2007.

Ekki urðu verulegar breytingar á sjónvarpseign landsmanna á þessu tímabili. Árið  2007 var sjónvarp ekki til á 3% heimila, tæplega 47% heimila voru með eitt sjónvarp, tæp 29% heimila með tvö og tæplega 22% með þrjú eða fleiri.

Um þriðjungur heimila í rannsókninni var áskrifandi að fréttablöðum og hefur  hlutfallið lækkað síðustu ár. Tæp 20% heimila voru áskrifendur að bókum og tæp 30% að tímaritum og hafa þau hlutföll haldist nokkuð stöðug, að sögn Hagstofunnar.

Um 97% heimila voru með sjónvarp en aðeins rúm 80% greiddu áskrift að  sjónvarpsstöð árið 2007. Þeim sem ekki greiða sjónvarpsáskrift hefur fjölgað, þeir voru rúm 14% árið 2005, tæp 20% árið 2006 og rúmlega 18% 2007. Um 40% kaupa áskrift að einni stöð og 40% að tveimur sjónvarpsstöðvum, en með sjónvarpsstöð er hér átt við þau fyrirtæki sem senda út sjónvarp en heimilin geta síðan keypt áskrift að einni eða fleiri rásum hjá þeim.

Rannsókn Hagstofunnar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert