Skemmdarverk á Háteigskirkju

Háteigskirkja í Reykjavík
Háteigskirkja í Reykjavík Morgunblaðið/Þorkell

Tilkynnt var um skemmdarverk á Háteigskirkju til lögreglu um tvöleytið í dag. Spreyjað og krotað var á veggi kirkjunnar á talsvert stórum fleti og  talið að tjónið sé umtalsvert.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var einn maður handtekinn í dag vegna málsins. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert