Helga Sigrún gagnrýnir Bjarna
Helga Sigrún Harðardóttir. mynd/sudurland.is
Helga Sigrún Harðardóttir, sem tók sæti á Alþingi nýlega fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi þegar Bjarni Harðarson sagði af sér þingmennsku, gagnrýnir Bjarna harðlega á bloggsíðu sinni í dag.
„Hvenær fáum við frið, Bjarni Harðarson? Telurðu ekki að þú hafi unnið flokknum nægan skaða nú þegar? Þú, sem gagnrýndir harkalega þau vinnubrögð sem þú sjálfur hefur gerst sekur um margoft, bæði með bakstungum úr launsátri, trúnaðarbroti þar sem þú segir eingöngu frá þinni hlið mála og dylgjum um okkur sem eftir sitja. Eða á ekki skilja skrif þín og ítrekaðar einshljóðfærissinfóníur þínar þannig að einu heiðarlegu mennirnir sem börðust gegn meintu flokkseigendafélagi séu farnir? Og við hin sem eftir sitjum séum strengjabrúður? Étt´ann sjálfur.
Það ríkir friður innan Framsóknarflokksins um þessar mundir og þingflokkurinn og helstu trúnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að leita skynsamlegra lausna fyrir íslenskt samfélag á hugmyndafræði sem byggir á jöfnuði og samvinnu. Ófriðurinn er allur utan við gluggana, fólginn í samsæriskenningum manns sem varð sjálfum sér að fjörtjóni með vinnubrögðum sem hann hafði sjálfur gagnrýnt manna hæst. Um það vitna fjölmargir pistlar á hans eigin síðu," segir Helga Sigrún.
Hún segist einnig spyrja sig um það hversu vel Guðni Ágústsson hafi verið í stakk búinn að standa undir hlutverki sínu sem formaður flokksins og hvort hann hafi ekki lagt sjálfur, með dyggri aðstoð Bjarna sjálfs, drög að eigin falli?
„Ýmsir flokksmenn ákváðu eftir ítrekaðar tilraunir til að ræða málin við sinn formann að tala við hann í gegnum fjölmiðla. Segir það mönnum eitthvað? Ég varð vitni að því þegar menn voru kallaðir á teppi formannsins ef þeir höfðu frumkvæði að því að birta eigin hugmyndir án þess að formaðurinn hefði lagt blessun sína yfir þær. Sumum sagt að hætta að skrifa í blöðin. Öðrum sagt að formaðurinn réði. Punktur. Og fylgið féll," segir Helga Sigrún, sem var í þriðja sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi við síðustu kosningar á eftir Guðna Ágústssyni og Bjarna Harðarsyni.
Bloggað um fréttina
-
Bergur Thorberg Hvenær fáum við frið fyrir Framsóknarmönnum? -
Haukur Gunnarsson Framsókn
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Innlent Bjarni segir af sér
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Innlent Eygló næst á lista
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Innlent Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Hlutfall kvenna á þingi komið í 36,5%
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Innlent „Bjarni móðgar framsóknarmenn"
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































