Segjast hættir í bili

Mótmælendur í útibúi Landsbankans við Laugaveg.
Mótmælendur í útibúi Landsbankans við Laugaveg. mbl.is/Júlíus

Hópur fólks, sem staðið hefur fyrir mótmælaaðgerðum í skrifstofum og útibúum Landsbankans í morgun, hefur nú yfirgefið útibú bankans að Laugavegi 77. Segir fólkið, að það sé hætt aðgerðum í bili.

Um 70 manna hópur ruddist inn í skrifstofur og afgreiðslu Landsbankans í miðborg Reykjavíkur laust eftir klukkan 9, hélt þaðan upp Laugaveg og inn í útibú bankans að Laugavegi 77. Fólkið var með kröfuspjöld og hrópaði slagorð gegn spillingu og bankakerfinu.

Lögreglan fylgdist með fólkinu en hafðist ekki að.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert