Fiskað fyrir 920 milljónir króna

Sólbakur EA1
Sólbakur EA1 mbl.is/Þorgeir Baldursson

Sólbakur EA1 hefur fiskað fyrir um 920 milljónir kr. á árinu og standa 5.000 tonn af afla á bak við þá upphæð. „Þetta er klárlega met hjá ísfisktogara,“ segir Haraldur Jónsson, rekstrarstjóri Sólbaks, og kveður ólíklegt að aftur verði fiskað fyrir aðra eins upphæð í íslenskum krónum, en afli Sólbaks fer að mestu á erlenda markaði.

„Ég get ekki séð að markaðsaðstæður á næstunni verði þannig. Við höfum bæði verið að selja á mjög góðu gengi og eins hefur gengið afskaplega vel að veiða þennan fisk.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert