Hundruð á Lækjartorgi

Fólkið mótmælir blóðsúthellingum á Gasa
Fólkið mótmælir blóðsúthellingum á Gasa Rax

Nokkur hundruð manns eru nú staddir á Lækjartorgi að mótmæla blóðsúthellingum á Gasasvæðinu. Er þess krafist að „fjöldamorð Ísraelshers á Gasa“ verði stöðvuð og að stjórnmálasambandi við Ísrael verði slitið.

Ræðumenn eru María S. Gunnarsdóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og sr. Örn Bárður Jónsson. Fundarstjóri er Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Fundurinn er undirbúinn af Félaginu Ísland-Palestína með stuðningi fjölmargra félagasamtaka, að því er segir í tilkynningu.

Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína ræðir við fundargesti.
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína ræðir við fundargesti. Rax
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert