Skíðað á Akureyri og í Skagafirði

mbl.is/Brynjar Gauti

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri verður opið í dag frá kl. 10-16.
Klukkan 8 í morgun var þar frostlaust og logn og hafði snjóað síðan laust eftir miðnætti.

Þá verður skíðasvæði Tindastóls í Skagafirði einnig opið til kl. 16 í dag. Nægur snjór mun vera á svæðinu auk þess sem göngusvæði hefur verið troðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert