Vinnu við Tónlistarhúsið frestað

Tónlistarhúsið.
Tónlistarhúsið. mbl.is/RAX

Verktakafyrirtækið IAV hefur ákveðið að fresta framkvæmdum við Tónlistarhúsið við Reykjavíkjurhöfn, sem áttu að hefjast í dag eftir jólahlé. Segist fyrirtækið  ekki hafa fengið greitt fyrir vinnu við byggingu hússins í þrjá mánuði.

Í tilkynningu frá ÍAV segir, að allra síðustu mánuði hafi staðið yfir viðræður við Austurhöfn TR, sem er  samstarfsvettvangur ríkis og Reykjavíkurborgar vegna byggingar og reksturs Tónlistarhúss, um kaup Austurhafnar á Eignarhaldsfélaginu Portusi sem er aðili að verksamningi við ÍAV um byggingu Tónlistarhússins.  Ekki hafi enn tekist að ljúka þessum viðræðum, en þær séu flóknar og snerti m.a. ríkið, Reykjavíkurborg, Gamla Landsbankann, Nýja Landsbankann auk ÍAV. 
 
„ÍAV hafa tekið þátt í þessum viðræðum að hluta til og sýnt mikinn skilning og þolinmæði.  ÍAV hafa ekki fengið greitt fyrir vinnu við byggingu hússins í þrjá mánuði og neyðist því til að fresta framkvæmdum sem hefjast áttu í dag, 5. janúar, að afloknu jólaleyfi starfsmanna meðan samningum hefur ekki verið lokið.   Á verkstað hafa unnið á þriðja hundrað starfsmenn ÍAV og undirverktaka auk þess sem fjöldi undirverkaka hefur unnið að verkinu víðar.  Starfsmenn ÍAV munu tímabundið flytjast í önnur verkefni félagsins.  ÍAV vonast til þess að framkvæmdir geti hafist á ný á næstu dögum," segir í tilkynningu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert