Allir vinningshafar komnir fram

mbl.is

Allir þrír vinningshafarnir í síðasta útdrætti laugardagslottósins hafa gefið sig fram en hver um sig vann tæpar 19 milljónir króna. Tveir vinningshafanna keyptu miðana sína á lotto.is og einn keypti miðann í N1 við Háholt í Mosfellsbæ.

Annar þeirra sem keypti miðann á lotto.is var með 6 talna kerfisseðil og notaði afmælisdaga fjölskyldunnar sem reyndust aldeilis lukkutölur um helgina. Þetta er 6 manna fjölskylda í Reykjavík. Heimilisfaðirinn kaupir stundum Lottó og notar alltaf afmælisdagana en var ekki heima þegar útdrátturinn fór fram og það var því mikil spenna hjá fjölskyldunni að vita hvort hann hefði munað eftir því í þetta sinn þegar þau sáu tölurnar sínar birtast á skjánum. Núna ætlar hann að setja tölurnar sínar í áskrift, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Hinn vinningshafinn sem keypti miða á lotto.is hefur verið atvinnulaus síðan í september. Hann var einnig með kerfisseðil og notaði afmælisdaga fjölskyldunnar til að lotta, með þessum fína árangri.

Vinningshafinn sem keypti miðann sinn í N1 í Mosfellsbænum kaupir miða þegar hann man eftir því. Síðastliðinn laugardag var hann svo ákveðinn í að kaupa að hann skrifaði það á tossamiðann til að muna nú örugglega eftir því. Hann kom við á N1 til að kaupa bensín og gleymdi ekki að kaupa Lottó í leiðinni, sem betur fer.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert