Vopnað rán í Lyfju í Lágmúla

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að manni sem rændi verslun Lyfju við Lágmúla um kl. 20 í kvöld. Ræninginn, sem huldi andlit sitt, hótaði starfsfólki með eggvopni. Að sögn lögreglu komst ræninginn undan, en hann tók eitthvað að lyfjum með sér.

Engan sakaði í ráninu að sögn lögreglu.

Rannsóknardeildin er nú með málið á sínum snærum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert