Líkkistusmíði í kreppunni

Sveinn Arnar Reynisson og Stefán H. Matthíasson færðu sig yfir …
Sveinn Arnar Reynisson og Stefán H. Matthíasson færðu sig yfir í líkkisturnar. mbl/grindavik.is

Tveir smiðir hófu að smíða líkkistur þegar verkefnin í byggingariðnaðinum minnkuðu. Líkkistugerðin er nýjasta sprotafyrirtækið í Grindavík eins og fram kemur á vefsíðu Grindavíkurbæjar.

Sveinn Arnar Reynisson og Stefán H. Matthíasson hafa rekið byggingafyrirtækið Norðanmenn. „Við ákváðum að leggja þann pening sem við gátum nurlað út úr góðærinu í þessa nýju viðskiptahugmynd. Okkur datt þetta í hug þegar við heyrðum kreppufréttir í hádeginu og ákváðum að kíla á þetta hér í Grindavík. Við erum að norðan, búum á höfuðborgarsvæðinu en vinnum í Grindavík," segir Sveinn Arnar á vef bæjarins.

Stefán segir að árlega séu seldar um 2300 líkkistur á Ísland og stærsti hlutinn innfluttur. Markmið Norðanmanna sé að ná góðri markaðshlutdeild enda vel samkeppnishæfir, þeir bjóða upp á kistur á mun lægra verði en þær innfluttu. Þá hafa þeir verið í þreifingum við Vestur-Íslending í Kanada um að selja líkkistur þangað en þar er mun stærri markaður en hér á landi. Þær viðræður eru hins vegar á byrjunarreit.

Vefur Grindavíkurbæjar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert