Jóhanna vekur athygli

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.

Þær fréttir, að Jóhanna Sigurðardóttir kunni að taka við embætti forsætisráðherra á Íslandi, hafa vakið athygli erlendis. Þar á meðal fjallar breskur fréttavefur, sem fjallar um mál frá sjónarhóli samkynhneigðra, um málið og segir að Jóhanna gæti orðið fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra heims.

Fram kemur á vef Alþingis, að maki Jóhönnu sé Jónína Leósdóttir,  blaðamaður og leikskáld.

Á fréttavefnum pinknews segir að Jóhanna hafi verið þingmaður frá árinu 1978 og sé vinsælasti stjórnmálamaður á Íslandi ef marka megi skoðanakannanir. 

Frétt pinknews

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert