Magnús Stefánsson hættir í stjórnmálum
mbl.is/Jim Smart
Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs fyrir komandi alþingiskosningar. Magnús segir niðurstöður af nýafstöðnu flokksþingi flokksins bera með sér að það sé almennur vilji flokksfólks að gefa nýju fólki tækifæri.
Magnús Stefánsson var fyrst kjörinn á Alþingi fyrir Vesturlandskjördæmi í alþingiskosningunum árið 1995. Hann náði ekki endurkjöri í alþingiskosningunum árið 1999, en tók sæti á Alþingi á ný vorið 2001 þegar Ingibjörg Pálmadóttir þáverandi heilbrigðis-og tryggingaráðherra lét af þingmennsku. Í alþingiskosningum 2003 var Magnús kjörinn þingmaður hins nýja Norðvestur kjördæmis og var endurkjörinn í alþingiskosningunum árið 2007.
Á þingmannsferli sínum hefur Magnús gegnt ýmsum verkefnum og ábyrgðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn og fyrir hönd Alþingis, bæði á vettvangi Alþingis og annars staðar. Hann tók við embætti félagsmálaráðherra vorið 2006 og gegndi því fram yfir alþingiskosningarnar árið 2007. Nú eru liðin nærri 14 ár frá því Magnús var fyrst kjörinn á Alþingi.
„Ástæður þess að ég hef tekið þessa ákvörðun eru þær að ég á að baki langan feril sem alþingismaður og ráðherra, tel að nú sé tímabært að láta af þingmennsku og að ég takist á við ný verkefni. Framsóknarflokkurinn er nú í mikilli framsókn, margt framsóknarfólk hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á vettvangi Alþingis, enda býr flokkurinn vel að mörgum hæfum einstaklingum til þeirra verka. Eins og niðurstöður af nýafstöðnu flokksþingi flokksins bera með sér er það almennur vilji flokksfólks að gefa nýju fólki tækifæri til forystu og starfa á vegum Framsóknarflokksins. Ég vil því á þessum tímamótum leggja mitt af mörkum til þess að stuðla að endurnýjun og breytingum á forystu og þingliði flokksins með því að gefa ekki kost á mér til endurkjörs,“ segir Magnús í yfirlýsingu.
|
|
Yfirlýsing Magnúsar Stefánssonar |
Bloggað um fréttina
-
Óskar Steinn Gestsson Farið hefur fé betra -
S i g u r ð u r Sigurðarson Við þurfum nýja stjórnmálamenn - eldmóð -
Gylfi Þór Gíslason Gott fordæmi -
Snæþór Sigurbjörn Halldórsson Traustur vinur kveður -
Jón Agnar Ólason Sá er ekki vildi biðja Breiðavíkurdrengi afsökunar -
Hermann Einarsson Drengur góður -
Magnús Þór Jónsson Verður ekki lengi atvinnulaus -
Stefán Friðrik Stefánsson Magnús hættir - mikil endurnýjun hjá Framsókn
Innlent »
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. janúar 2009, Innlent Magnús ætlar ekki í formanninn
- Miðvikudagur, 7. janúar 2009, Innlent Eygló vill embætti ritara
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Fréttaskýring: Völ og kvöl í Norðvesturkjördæmi
- Sunnudagur, 26. apríl 2009, Innlent Gunnar Bragi ánægður með gengi Framsóknarflokksins
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Frjálslyndir undirbúa framboð
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































