Gildandi vextir haldast við yfirtöku íbúðalána Kaupþings

Kaupþing hefur ákveðið að veita lántakendum íbúðalána tímabundin afslátt af uppgreiðslugjaldi. Þá hefur bankinn einnig ákveðið að tímabundið verði einstaklingum heimilt að yfirtaka íbúða­lán Kaupþings við fasteignakaup á gildandi vöxtum lánsins.
 
Í tilkynningu bankans segir að í ljósi erfiðra aðstæðna á fasteignamarkaði hafi bankinn ákveðið að veita lántakendum íbúðalána tímabundið 50% afslátt af uppgreiðslu­gjaldi þegar þeir greiða upp lán sín eða greiða inn á þau yfir 1 milljón króna.   
 
Einnig hefur verið ákveðið að tímabundið verði einstaklingum heimilt að yfirtaka íbúða­lán Kaupþings við fasteignakaup á gildandi vöxtum lánsins. Til þess að viðskiptavinur bankans njóti vaxtaafsláttar, þarf hann að vera félagi í Vexti, vildarþjónustu Kaup­þings. Lánið verður að vera innan settra veðsetningarmarka og nýr greiðandi þarf að standast greiðslumat bankans.
 
Vextir nýrra íbúðalána Kaupþings eru nú 6,65% en 5,90% til þeirra sem njóta vaxtaafsláttar. Mörg af lánum bankans bera 4,90% vexti en 4,15% til þeirra sem njóta vaxtaafsláttar.
 
Fram til þessa hefur ekki verið heimilt að yfirtaka íbúðalán hjá Kaupþingi á upphaflegum kjörum heldur hafa yfirtekin lán verið færð á gildandi vaxtakjör við undirritun kaupsamnings. Breytingarnar munu að mati Kaupþings liðka fyrir fasteignaviðskiptum og nýtast bæði kaupendum og seljendum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert