Vopnað rán í lyfjaverslun í Austurveri

Verslun Lyfja og heilsu í Austurveri.
Verslun Lyfja og heilsu í Austurveri. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Tilkynnt var um vopnað rán í verslun Lyfja og heilsu í Austurveri á Háaleitisbraut kl. 15.24 í dag. Kona vopnuð hnífi og sprautunál hótaði starfsfólki og komst undan með eitthvert magn af lyfjum. Hún var handtekin skömmu síðar í nágrenninu ásamt karlmanni sem talinn er hafa verið í vitorði með henni. Hennar bíður nú yfirheyrsla og skýrslutaka hjá lögreglunni.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu meiddist enginn, þó starfsfólki hafi vissulega verið brugðið. A.m.k. tveir lögreglubílar voru í nágrenninu þegar tilkynnt var um ránið og voru þeir fljótir á staðinn, auk þess sem fleira tiltækt lið var á leiðinni. 

Lögreglan var fljót á staðinn.
Lögreglan var fljót á staðinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert