Aldrei of blönk til að hugsa

Vilhjálmur Bjarnason. stækka

Vilhjálmur Bjarnason. mbl.is/Kristinn

mbl.is Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

Íslenska þjóðin er í raun stödd í miðju sorgarferli sem tekið getur 2-3 ár. Að baki eru tímabil tilfinningaleysis og doða, við erum nú í miðri upplausninni, en framundan eru tímabil uppgjörs við fortíðina og aðlögun að breyttum raunveruleika.

Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur, en hann hélt í dag erindi í Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni Hrunið og vonin. Vilhjálmur hefur ásamt Stefáni Einari Stefánssyni, viðskiptasiðfræðingi, flutt erindi á þessum nótum í kirkjum landsins að undanförnu. 

Í samtali við mbl.is segist Vilhjálmur fyrst hafa kynnst sorgarferlinu af eigin raun þegar honum hafi skyndilega verið sagt upp störfum, þar sem hann gegndi stöðu útibússtjóra hjá Búnaðarbankanum, fyrir rúmum tuttugu árum, en skömmu síðar missti hann föður sinn.

Hvorki auðhyggja né frjálshyggja heldur glæpastarfsemi 

Segist hann hafa séð að mjög margt væri líkt með sorgarferlinu sem tengdist andlátinu og því sorgarferli sem tengdist skyndilegum atvinnumissi og út af því leggi hann m.a. í erindi sínu, auk þess sem hann fari yfir ýmsar tölulegar upplýsingar. 

Undirtitill erindis hans er einmitt: „Hvernig gat íslensk þjóð leiðst út í skuldir sem eru hærri en tölum tekur?“ Að sögn Vilhjálms brugðust allir þegar kom að hruni stóru viðskiptabankanna þriggja, bæði stjórnendur, stjórnarmenn, innri endurskoðendur, Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands svo einhverjir séu nefndir. 

„Rekstur íslensku bankanna byggðist hvorki á auðhyggju eða frjálshyggju,“  segir Vilhjálmur og vísar þar annars vegar til auðhyggju Kalvins og Max Webers, sem hafði iðjusemi og sparsemi að leiðarljósi, og frelsi Johns Stuarts Mills sem kvað á um það að heimilt sé að gera hvað sem er svo framarlega sem það skaði ekki aðra.

Ekki hægt að fyrirgefa þeim sem ekki biðjast afsökunar

Fyrirgefningin getur oft orðið fyrirferðarmikil í sorgarferlinu. Að sögn Vilhjálms er forsenda þess að hægt sé að fyrirgefa sú að sá sem hafi brotið á manni biðjist fyrirgefningar. „Það hefur hins vegar enginn ennþá gert og því er ekki hægt að fyrirgefa,“ segir Vilhjálmur og tekur fram að hann sé þess fullviss að takast muni að draga ábyrgðarmenn bankahrunsins til ábyrgðar fyrir dómstólum, enda sé nú orðið morgunljóst að bankarnir hafi verið tæmdir innanfrá.

Spurður í hverju vonin felist sem hann boði í yfirskrift erindis síns segir Vilhjálmur m.a. sjá hana í því mikla hugviti sem sé að finna hérlendis sem birtist í nýsköpun og þróun t.d. á sviði læknisfræðinnar, lyfjaþróunar og starfsemi Össurar hf. og Marels hf. 

„Ef við hefðum nú fleygt peningum í þetta í stað þess að fleygja þeim út um gluggann þá hefði það skilað okkur einhverju,“ segir Vilhjálmur og tekur fram að ekki megi bara einblína á mannaflsfrekar framkvæmdir í komandi atvinnuuppbyggingu. „Það er talað um að það þurfi mannaflsfrekar framkvæmdir til að byggja vegi, en það er hægt að byggja ýmsar hraðbrautir í nýsköpun,“ segir Vilhjálmur og bendir á að mikilvægt sé að stuðla að atvinnuuppbyggingu sem sé sambland af atvinnusköpun fyrir faglærða og ófaglærða.  „Við erum aldrei svo blönk að við höfum ekki efni á að hugsa.“

Alþingi aldrei tekið ákvörðun um efnahagsmál hérlendis

Að mati Vilhjálms mun íslensk þjóð ekki komast út úr fjárhagshremmingum sínum nema með aðstoð annarra ríkja. Segir hann ríkisstjórn, Alþingi og Seðlabankinn ekki hafa mátt til þess að leysa það risavaxna verkefni sem þjóðin standi andspænis án utanaðkomandi aðstoðar. „Aðrar þjóðir koma hins vegar ekki hér nálægt nema Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé samræmingaraðili,“ segir Vilhjálmur. Hann telur að innganga upptöku evru mikilvæg skref í átt til efnahagsbata hérlendis.

Vilhjálmur beinir í erindi sínu sjónum að þeirri staðreynd að Alþingi hafi aldrei tekið neina grundvallarákvörðun í efnahagsmálum þjóðarinnar. Nefnir hann að sú ráðstöfun að gengi gjaldmiðilsins skuli ákveðið í Seðlabankanum hafi verið ákveðið með bráðabirgðalögum árið 1961 framhjá Alþingi. Einnig hafi heimild til almennrar verðtryggingar verið lögfest sem aukaatriði með frumvarpi til laga um stjórn efnahagsmála. Ekki liggi heldur fyrir ákvörðun Alþingis í tengslum við frjálsa vexti, heldur hafi þeir verið heimilaðir á grundvelli gleymds ákvæðis í lögum um Seðlabanka Íslands í andstöðu við forsætisráðherra þegar hann var í fríi. 

Vilhjálmur og Stefán Einar flytja næst erindi sín á Akranesi miðvikudaginn 18. febrúar og í Borgarnesi miðvikudaginn 25. febrúar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »
Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunni. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Nissan Patrol -TILBOÐ AÐEINS ÞESSA HELGI
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Ásett verð 1....
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
Toyota Avensis 1,8 árgerð 06/2006 5 gíra
Góður og vel með farinn bíll. Ekinn 175 þús.mest langkeyrsla. Þjónustubók, hiti...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...