Fékk 10 fyrir meistaraprófsritgerð í RES Orkuskóla

Maciej Lukawski frá Póllandi, sem fékk 10 í einkunn fyrir …
Maciej Lukawski frá Póllandi, sem fékk 10 í einkunn fyrir meistaraprófsritgerðina, er lengst til vinstri. Petra Bozic og Luka Zajec frá Slóveníu, brautskráðust einnig í dag. Ljósmynd/Rúnar Þór Björnsson

Pólskur nemandi, Maciej Lukawski, hlaut einkunnina 10 fyrir meistaraprófsritgerð við RES Orkuskóla á Akureyri og meðaleinkunnina 9,45 á prófi, en fyrsta brautskráning skólans var í dag; fyrsta brautskráning meistara í orkufræðum hér á landi.

Brautskráning RES (The School for Renewable Energy Science) fór fram við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Í heild voru þrjátíu nemendur brautskráðir með M.Sc. gráðu í endurnýjanlegum orkufræðum af þremur námsbrautum en nemarnir koma frá níu þjóðlöndum. Námið hefur staðið í samfleytt eitt ár og að því komið um 70 kennarar bæði innlendir en fyrst og fremst þekktir erlendir prófessorar og fræðimenn.

RES Orkuskóli hefur nána samvinnu með Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri og veita háskólarnir tveir sameiginlega þá meistara-prófsgráðu sem nemendur fá. Þetta er í fyrsta skipti sem háskólar hér á landi koma sameiginlega að brautskráningu með þessum hætti.

Alþjóðlegur skóli sem á sér hvergi hliðstæðu

Nemendurnir sem útskrifast í ár eru af þremur áherslusviðum: jarðhitaorku, lífmassa og vistvænu eldsneyti, efnarafölum og vetni. Á nýhöfnu skólaári var fjölgað um eina braut við skólann en stefnt er að því að námsbrautir verði alls sjö innan fárra ára.

„Þegar við hófum undirbúning að RES Orkuskóla fyrir fimm árum þá gerðum við ítarlega leit um allan heim án þess að finna nokkra hliðstæðu við okkar hugmynd. Víða var að finna við erlenda háskóla deildir sem komu að hluta inn á okkar nám en okkar markmið frá byrjun var að bjóða í RES upp á nám á mismunandi sviðum endurnýjanlegra orkugjafa. Sömuleiðis settum við okkur það markmið að fara ekki af stað með námið fyrr en við hefðum gert samninga við virta erlenda háskóla, bæði til að tryggja okkur leið að nemendum í hæsta gæðaflokki, sem og kennurum. Með því undirstrikum við hversu miklar kröfur eru gerðar í náminu hjá okkur. Nemendahópurinn sem lýkur prófi við skólann í dag er fólk í hæsta gæðaflokki sem kemur til með að vera leiðandi í orkumálum þjóða víða um heim á komandi árum og fyrir okkur Íslendinga verður mikils virði að þetta fólk hafi hlotið sína menntun hér á landi. Þetta er því stór stund ekki bara fyrir bæjarfélagið og háskólasamfélagið á Íslandi, heldur einnig í eflingu menntaframboðs á sviði endurnýjanlegra orkugjafa á heimsvísu og þróun framtíðar orkugjafa,“ segir dr. Björn Gunnarsson, forstöðumaður RES Orkuskóla.

Einstakur námsárangur

Nú þegar hefur nýr nemendahópur hafið meistaranám í endurnýjanlegum orkufræðum við RES Orkuskóla og voru í þetta sinn valdir 40 nemendur úr um 100 umsóknum. Umsóknir vegna skólaársins 2010-2011 eru einnig teknar að berast, sem er til marks um að skólinn vekur athygli í háskólasamfélaginu víða um heim. Við athöfnina í dag var Maciej Lukawski frá Póllandi veitt sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur á jarðhitaorkubraut RES.

Meistaraprófsritgerð Lubawski ber titilinn „Design and Optimization of Universal Organic Rankine Cycle Power Plant for European Conditions“ og fyrir hana fékk hann 10 í einkunn. Meðaleinkunn hans á prófi er 9,45, sem þykir einstæður árangur í jafn kröfuhörðu námi og raun ber vitni. Enda hafa erlendir háskólar þegar sýnt þessum nemanda, sem og fleirum úr útskriftarhópi RES, mikinn áhuga.

Orkuvörður ehf. eiga og starfrækja RES Orkuskóla. Hluthafar í Orkuvörðum eru Þekkingavörður ehf., RARIK, KEA, Gift fjárfestingarfélag, Landsvirkjun, Norðurorka, Akureyrarbær og Landsbanki Íslands. Eins og áður segir eru Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri meðal nánustu samstarfsaðila skólans, að ótöldum tugum háskóla víða um heim.

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, var viðstödd brautskráninguna í dag, auk rektora og fulltrúa Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri, fulltrúa Tækniháskólans í Varsjá, varasendiherra Bandaríkjanna og fjölda annarra gesta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert