CNN.IS er til sölu

Lénið CNN.IS er nú auglýst til sölu á norsku sölutorgi á netinu. Seljandi segir að til sölu sé „hið fullkomna lén“ og vill fá 4.995 norskar krónur fyrir, eða rúmlega 82 þúsund íslenskar krónur. Samkvæmt lénaskrá ISNIC er Norðmaður skráður fyrir léninu. Það var skráð 7. desember 2008.

Árgjald léns er 7.918 krónur og þarf að greiða árgjald fyrsta árs áður en lén er stofnað.

Auglýsingin um lénið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert