20. útifundurinn á Austurvelli

mbl.is

Samtökin Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli í dag. Þetta er 20. vika útifundanna og sem fyrr undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu.

Samtökin Raddir fólksins hafa einbeitt sér að því að kalla til fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins til að ræða og bregða ljósi á það stjórnmála- og efnahagsástand sem ríkir á landinu.

„Það verður aldrei nægilega oft undirstrikað að á bakvið þessa fundi eru ekki nein stjórnmálasamtök né stjórnmálahreyfing, heldur er þetta sjálfsprottið og ólaunað framtak, tilkomið vegna mannréttindabrota á heilli þjóð,“ segir í tilkynningu frá Röddum fólksins.

Ræðumenn á Austurvelli verða Marinó G. Njálsson  ráðgjafi og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra. Fundarstjóri er sem fyrr Hörður Torfason en fundurinn hefst klukkan 15.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert