Stálu dekkjum undan barnavagni

Það er eins gott að hafa dekk undir vagni ef …
Það er eins gott að hafa dekk undir vagni ef aka á barni í slíku farartæki. mbl.is/Guðmundur Rúnar

Tveir sautján ára piltar stálu dekkjum undan barnavagni í anddyri fjölbýlishússins að Fjarðarstræti 7 á Ísafirði fyrir stuttu. Ætluðu þeir að nota dekkin undir kassabíl. María Rut Kristinsdóttir, eigandi vagnsins, segir að sér hafi brugðið þegar hún ætlaði að svæfa eins árs gamlan son sinn og sá að dekkin vantaði undir vagninn.

María sá fram á umtalsvert tjón enda kostar barnavagninn 140 þúsund krónur og hvert dekk 20 þúsund krónur. María fór til lögreglunnar og tilkynnti um þjófnaðinn og var henni þar bent á að auglýsa eftir dekkjunum. Hún hengdi upp götuauglýsingar og setti tilkynningu inn á Facebook og þaðan barst henni ábending hvar dekkin væri að finna.

www.bb.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert