Krefst rannsóknar á hagsmunatengslum

Ólafur F. Magnússon.
Ólafur F. Magnússon. mbl.is/Ómar

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, hyggst leggja fram tillögu á næsta borgarstjórnarfundi, sem fram fer 3. mars nk., um að  opinber rannsókn fari fram á hagsmunatengslum Óskars Bergssonar við byggingarverktaka í borginni.

Ólafur segir í tilkynningu að Óskar hafi að undanförnu orðið uppvís að grófri misbeitingu starfs síns sem formaður borgarráðs.  Ólafur segir jafnframt að  fram hafi komið fjöldi ásakana og vísbendinga um að Óskar hafi gengið erinda byggingarverktaka, sem hann hafi tengsl við, á kostnað borgarbúa.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert