Harma árás í Sandgerði

Hnefaleikafélag Reykjaness hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið harmar það að einn félagsmanna hafi verið í hópi þeirra sem réðust á fjórtán ára pilt í Sandgerði.

„Hnefaleikafélag Reykjaness harmar það atvik sem átti sér stað þegar einn meðlimur félagsins varð uppvís að því að lenda í áflogum.

Umræddur meðlimur hefur verið fram til þessa virkur meðlimur og góður félagi í HFR, því hörmum við þetta mjög, en vonum eindregið að svo verði áfram.

Okkar afstaða er skýr til brota af þessu tagi.  Við samþykjum ekki svona hegðun og lítur hnefaleikafélagið brot af þessu tagi mjög  alvarlegum augum.

Hnefaleikafélagið mun vinna úr þessu máli í nánu sambandi við  umræddan meðlim og foreldra hans.

Fyrir hönd stjórnar Hnefaleikafélags Reykjaness. Guðjón Vilhelm.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert