Eldur í bíl á Hafnarfjarðarvegi

Það kviknaði í bíl á Hafnarfjarðarvegi i í kjölfar áreksturs.
Það kviknaði í bíl á Hafnarfjarðarvegi i í kjölfar áreksturs. mbl.is/Júlíus

Umferðartafir eru nú á Hafnarfjarðarvegi til móts við Kópavogshælið vegna elds sem kom upp í bíl eftir árekstur tveggja bíla á leið til Reykjavíkur.

Lögregla og slökkvilið eru komin á vettvang og er umferð beint um aðra akreinina. Þá hefur verið farið með ökumann bílsins sem að ekki kviknaði í á sjúkrahús vegna meiðsla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert